Heilsa fyrir mömmur - gaman fyrir börn



Ofurmömmur er námskeið hugsað fyrir allar þær mæður sem vilja ná góðum og árangursríkum æfingum með börnin sér við hlið.

Aðal áhersla er lögð á styrkingu líkamans eftir barnsburð en einnig fitubrennslu og þol.
Skoðað verður  sjúkrasögu, fyrri reynslu af íþróttum og líðan eftir barnsburð hjá hverri og einni. Allar konur ættu að geta fengið jafn mikið út úr æfingunum á öruggan hátt.

Á æfingum er notast aðalega við eigin líkama, börnin okkar og kerrur við æfingar enn einni
bolta, teygjur og létt handlóð.
Spiluð verður hressileg og skemmtileg barnatónlist, sungið, klappað og leikið við börnin svo þau hafa gaman af og fái jafn mikið út úr æfingunum og mömmurnar.

Þú getur verið örugg um að labba sveitt út og barnið með bros á vör! :).


 
Námskeiðið er haldið í Hnefaleikastöðinni (www.box.is) að Viðarhöfða 2 110 Rvk. 

Ef þú hefur einhverjar spurningar endilega hafður samband hér.